Algengasta bergtegund á Íslandi er basalt en hér er eitt stærsta basaltsvæði jarðar. Um 80% af bergi á Íslandi er basalt. Basalt myndast þegar bráðin kvika sem kemur upp í eldgosum storknar. Bergtegundir Íslands eru mjög aðgengilegar vegna þess að allt landið er búið til af eldfjöllum.